Öll hönnun á sér einstaka sögu. Barbour er fyrirtæki sem á eina slíka sem mér finnst æðisleg.
Ég hrífst af sögu, gæðum & útliti þegar kemur að merkjum eins & Barbour. Durham vax jakkinn er ein af þessum flíkum sem ég dýrka að klæðast ásamt flottum gallabuxum & Timberlandskónum mínum þegar ég tek göngutúra í náttúrinni. Það sem er líka æðislegt við gæðin frá Barbour er að Kiljan Gauti sonur minn á örugglega eftir að eignast hann & halda áfram að skapa minningar í honum.
Hérna að neðan er myndband með snilling sem var með búð sem hét Lark í Vancouver. Hann sýnir hvernig á að meðhöndla & bera vax á uppáhalds jakkann sinn.
Gunni vinur minn sagði mér að þeir stórfengilegu piltar í Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar halda tvisvar á ári vaxdaga fyrir þá sem eiga Barbour vax jakka & bjóða þeim að koma til að vaxa jakkana sína undir leiðsögn þeirra. VEL GERT.