Sítrusmarineraður lax með kremuðum lauk, chilli & fennel saladi & kartöflumús.
Ég veit ekkert betra í fyrstu haustlægðinni en að elda rjómakenndann lax. Þessi réttur hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér, hann er súper bragðgóður & ferskur.
Sítrusmarinering:
Hellið ólífuolíu í fat þannig að hún þekji botninn & rífið út í börk af 1 stk sítrónu & 1 stk lime, skerið bæði sítrónuna & lime til helminga & kreistið safann einnig yfir. Leggið laxinn ofan í & látið marenerast í max 10 til 15 mín þar sem hann byrjar að eldast í mareneringunni. Meðan laxinn er að marinerast er gott að henda í sósuna.
Kremuð lauksósa uppskrift:
1 stk blaðlaukur eða púrrulaukur eftir smekk. Það er best að skera laukin gróflega
1/2 ltr rjómi
Sletta af hvítvíni – sirka 5 mtsk
Aðferð.
Mýkjið laukinn á pönnu í smá ólífuolíu.
setjið 2 mtsk hvítvín yfir & látið malla í þar til hvítvínið er soðið að mestu niður.
Hellið rjómanum yfir & látið malla saman á lágum hita í 10 mín eða þar til sósan hefur þykknað.
Laxinn eldaður:
Laxinn er tekinn úr mareneringunni & steiktur á pönnu, ekki þarf að setja olíu á pönnuna þar sem hann er búin að liggja í mareneringunni. Létt steikið laxinn stuttlega að ofan og látið hann svo eldast rólega á roðinu.. Gætið þess að elda hann ekki um of þar sem hann er bestur safaríkur.
Salat með fennel & chilli ásamt sætri sítrus dressingu:
Það er best að byrja á að útbúa saladið og dressinguna.
Ég notaði ruccola & skar út í það 1 stk fennel & 1 skt rautt chilli saxað smátt.
Dressingin er útbúinn úr 1 dl ólífuolíu, safi úr 1/2 stk sítrónu & ein til tvær mtsk sykur. Olíu og sítrónusafa er hrært saman í skál og svo sykrinum bætt út í rólega og smakkað til. Dressinging gefur góðan contrast á móti sterku chilli.
Ég nota einnig kartöflumús sem ég set undir laxinn.
Eitt af mínum uppáhalds hvítvínum er Memoro frá Piccini & passaði það mjög vel með þessum rétti.