Um daginn prufaði ég eftir ábendingar frá vinum að panta mér Shape matarpakkana frá Kokkunum. Pakkarnir eru algerlega málið fyrir þá sem vilja taka sig á í matarræðinu og einnig fullkomnir fyrir þá sem vilja létta sig á hollan hátt.
Ég greindist með sykursýki 1 fyrir nokkrum árum & þarf að hugsa einstaklega vel um heilsuna. Stór hluti af því er að borða reglulega yfir daginn hollan & góðan mat til að halda blóðsykrinum í réttu jafnvægi. Ég hef ekki alltaf tíma til að skipuleggja mig og var því að leyta eftir einhverju tilbúnu & hollu.
Þeir hjá Shape reikna út í pakkana fyrir hvern dag rétt magn af trefjaríkum kolvetnum, próteinum & hollri fitu sem gefa 1500 eða 1800 kaloríur eftir þörfum.
Ég tók tveggja vikna átak. Ég valdi dagana sem ég vildi fá matarpoka & svo pikkaði ég hann upp á næstu N1 stöð. Ég gat mælt árángurinn yfir þessar tvær vikur þar sem ég mæli blóðsykurinn minn nokkru sinnum á dag & var hann í mjög góðu jafnvægi.
Í pokanum færðu allt sem þú þarft fyrir daginn þinn & útskýringar á matseðli dagsins.
Ég upplifði alla réttina út þessar tvær vikur mjög girnilega & bragðgóða. Hér er lýsing á einum degi en þá var boðið uppá eftirfarandi:
Hádegi.
Arrabískur lambakjötsréttur með hummus & hollu naan brauði.
Millibiti.
Ferskur bláberja þeytingur með hveitikíms & hafra lummu.
Kvöld.
Heilhveiti tortila með kjúkling, sætum kartöflum, spínat & spicy sósu.
Kvöld snarl.
Sítrónu poppkorn.
Síðan kom daginn eftir.
Morgunmatur.
Hafragrautur toppaður með skyri, hindberjum & kakó.
Safi.
Ferskur engifersafi
Þegar þú sækir fyrsta pokan þinn ertu að fá morgunmatinn fyrir daginn eftir og byrjar í raun á hádegismatnum.
Millibitinn fannst mér frábær að fá, þetta er mikilvægur hlutur sem ég yfirleytt gleymi.
Kvöldmaturinn í þetta sinn var heilhveiti tortila, fullkomið sambland af hollri næringu með mjög bragðgóðri spicy sósu.
Ef þið eruð með smá craving á kvöldin þá er alltaf eitthvað hollt & gott til að fá sér í pokunum & þetta sítrónu poppkorn var æði.
Mér fanst síðan æðislegt að fá tilbúin hafragraut & ferskan engifersafa morguninn eftir. Þeir eru víst með 50 mismunandi uppskriftir af hafragraut.
Það er Gunnar Már heilsugúru sem vinnur þetta með kokkunum & hann er alveg með þetta á hreinu að mínu mati.
Ef þið viljið kynna ykkur shape þá getið þið gert það hér, skoða matseðil vikunar & sjá fjölbreytnina.
Það er hægt að panta eingöngu morgunmat, millimál & hádegismat eða fara full on & taka kvöldmatinn með. Ég sjálfur nýtti mér vikuna sem París & Kiljan Gauti voru hjá mér uppað hádegismat en vikuna sem þau voru hjá mömmu sinni tók ég allann pakkann & og þurfti ekki að hafa áhyggjur af eldamenskunni þá vikuna sem var ótrúlega þægilegt í amstri dagsins.
Ég mun örugglega halda áfram að taka svona átak reglulega, helst eina viku í mánuði, þar sem þetta kemur manni algerlega á beinu brautina í matarræðinu.