Nýjasta vörulína Iittala er komin til landsins. Þetta er samstarf tveggja hönnunarhúsa frá sitthvorum heimshlutanum sem eru þekkt fyrir tímalausa hönnun finnska Iittala & Japanska Issey Miyake.
Útkoman er ótrúlega falleg & tímalaus hönnun sem samanstendur af keramik, glervöru & geggjuðum textílvörum.
Þetta samstarf Iittala X Issey Miyake hefur vakið heimsathygli & er þessi nýja vörulína orðin strax mjög vinsæl um heim allan.
Textílvörurnar eru ótrúlega fallegar & hafa þann eiginleika að formið heldur sér alltaf, þetta efni hefur svokallað minni & dregst alltaf í sína upprunalegu mynd.
Glasamotturnar koma í nokkrum mjúkum & fallegum litum.
Hér að neðan getið þið kíkt á bakvið tjöldin & fengið innsýn inn í þessa fallegu hönnun.
Þessi yndislega vörulína er fáanleg í Húsgagna Höllinni & eru allgjörlega uppáhaldið mitt.