Reykjavík 101 er að taka á sig stórfengilegar breytingar að mínu mati, þar sem Hafnatorgið er að breyta ásýnd miðbæjarins & nokkrar nýjar íbúðabyggingar eru að rísa.
Eitt af þessum geggjuðu & vel útfærðu húsum er staðsett við Hverfisgötu 94-96 þar eru tilbúnar 38 íbúðir, klárlega ein af betri staðsetningum í 101.
Útsýnið er stórfengilegt úr efstu hæðum & einnig eru 45 bílastæði í bílakjallara hússins sem er klárlega kostur fyrir íbúa hússins. Tryggvi Tryggvason hjá Opus teiknistofu er aðalhönnuður húsinss & snillingarnir Berglind Berndsen & Helga Sigurbjarna sáu um innanhús hönnunina. Þannig má segja að þetta sé sannkölluð hönnunarperla í 101.
Húsið hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir hönnun & þá sérstaklega í vali á klæðningum sem eru utan á því. Á götuhæð hússins er svo gert ráð fyrir 4 verslunum ásamt veitingastað Barónstígsmegin & verður spennandi að sjá hverjir opna í þessum flottu rýmum. Hverfisgatan er búin að fara í gegnum svo ótrúlegar breytingar á síðustu árum & er að stimpla sig inn sem ein af aðalgötum 101 ásamt Laugaveg & Skólavörðustíg.
Á bakhlið hússins er hægt að sjá hvernig hönnunin er hugsuð, þar sem húsið er byggt í nánast U & myndar það stóran sameiginlegan garð í miðjunni fyrir alla til að njóta.
Ef Sir Arnar Gauti ætti að fá að velja sér íbúð í þessu húsi er það klárlega íbúð 502. Hún minnir mig á hönnun frá þakíbúðum í París, þar sem gluggarnir eru hallandi inn & bakhliðin er einnig æðisleg. Útsýnið úr 502 er stórfengilegt að sjálfsögðu líka, þar sem fjallahringurinn & hafið blasir við.
Íbúðirnar eru frá 59 til 186 fermetrar & ættu allir að geta fundið sér íbúð við sitt hæfi í þessu eftirsóknaverðu húsi.
Byggingin í heild sinni & íbúðirnar eru mjög vel gerðar & smíðaðar af traustum góðum verktaka SA Verk & allur frágángur er til fyrirmyndar.
Sir Arnar Gauti tók að sér það verkefni að setja upp sýningaríbúðina fyrir söluferlið á þessum íbúðum & setti ég upp íbúð 201 sem er 86 fermetra 2 herbergja íbúð á jarðhæð með útgengi á sér svalir.
Það fyrsta sem ég tók eftir & elska við þessar eignir er hvað hönnuninn á innréttingum frá Berglindi & Helgu eru ótrúlega vandaðar & fallegar. Ég gjörsamlega dýrka þetta eldhús, að hafa innfelldan ískáp & uppþvottavélina inn í innréttingunni sem nær síðan alveg á milli veggja & uppí loft er æði. Eyjan er ótrúlega mikil mubla & mikið pláss í henni sem setur mikin svip á alrýmið í heild sinni.
Það þarf ekki að taka það fram fyrir þá sem þekkja til Sir Arnar Gauta að hafa allar innréttingar svartar er mind blowing fyrir menn eins & mig.
Öll eldhús tæki eru vönduð & vel valin, þar sem spanhellur eru & innbyggður háfur er inní innréttingunni & ískápurinn innfelldur sem gerir allt ótrúlega stílhreint & fallegt.
Ég innréttaði alla íbúðina með uppáhalds vörumerkinu mínu í húsgögnum sem er Dialma Brown frá Ítalíu & fæst einungis í Húsgagnahöllinni hér á landi. Þessi stíll hefur alltaf heillað mig sem er svona bland af rústik & glæsileika. Borðstofuborðið er eins & ég hafi keypt það gamalt frá París, svona franskt Rococo & Baroque með twisti & er stækkanlegt. Ljósið er frá því fallega vörumerki Nordhal sem einnig fæst í Húsgagnahöllinni & hnífapör & matarstell er frá öðru uppáhaldinu mínu Broste Copenhagen.
Stólarnir eru mjög mikið í Louis XIV stíl & eru í brass brúnu sléttflauel & klárlega einn af mínum uppáhalds borðstofustólum. Bókahilluna fynst mér gaman að nota fyrir fallega decor hluti & setur hún mikinn svip á íbúðina.
Baðherbergið er rúmgott & með flottum hringspegli, ásamt að vera með þessar fallegu svörtu innréttingar & hita í gólfum.
Fallegar flísar eru á baðinu & walk inn sturtan er æði.
Svefnherbergið er rúmgott & valdi ég 180×200 rúm frá Dorma sem er Natures Supreme dýna & classik botn með svortu pu efni. Ég dýrka þessi einföldu en rústik náttborð frá Dialma Brown, endurunnin viður á grófum stálfótum er allt sem þarf. Pláss fyrir lampann & bókina í hillunni.
Það er stórir skápar í svefnherberginu í auðvitað svörtu eins & allar innréttingarnar í íbúðinni.
Ég valdi þennan 4 sæta stórfengilega sófa í þessa íbúð sem kemur frá Dialma Brown eins & reyndar allt annað enda er hann uppáhaldssófinn minn. Hann er til í bláu & gráu sléttflauel & með þessari flottu bólstrun. Stóllinn er einnig geggjaður en hann er framleiddur úr endurunnu leðri & endurunnum við ásamt járni, þetta er ótrúlega þægilegur hægindastóll & setur alltaf mikin svip þar sem honum er komið fyrir á heimilum landsins.
Barstólarnir sem ég valdi í þessa íbúð eru auðvitað frá Dialma Brown & eru ótrúlega flottir, þeir eru úr steyptu járni & endast endalaust eins & sagt er. Mér finnst þetta alltaf mikið atriði að svona stólar séu þægilegir (ótrúlegt en satt er hann það miðað við að vera úr járni) & einnig að þeir séu svipsterkir þar sem þeir spila mikið hlutverk við þessa flottu eyju & í alrýminu.
Ég valdi einnig loftljósin í íbúðina & eru sívalningarnir frá fyrirtækinu kubbaljós.is hjá Gumma Vald snillingi. Fannst klárlega þau þurfa að vera svört & stílhrein.
Miklaborg & Þórunn Páls er með þessa hönnunarperlu í söluferli & eru allar íbúðirnar nýkomnar á söluskrá þar sjá HÉR
Einnig er sér heimasíða um verkefni, þar sem hægt er að skoða teikningar, útlit & verð HÉR
Ég klárlega myndi skoða þessar eignir ef þú ert í íbúða eða fjárfestinga hugleiðingum & bóka skoðun. Eins & ég segi alltaf lífið er upplifun
Á endanum læt ég nokkrar myndir fylgja með frá þessu skemmtilega verkefni sem mér þótti vænt um að taka að mér & framkvæma.
Þar sem stór krani var á svæðinu vorum við ekkert að flækja hlutina & allt var híft upp að dyrum
Alltaf gaman þegar ég fæ hreinan ramma & svo nokkra sendibíla af fallegum vörum til að hanna rýmið að innan.
Það er orðið standard að setja Nespresso vélar í fallegar íbúðir í dag. Þegar er opið hús fá allir gott kaffi.
Litlu hlutirnir skipta ótrúlega miklu máli að mér finnst. Fallegt decor er unun að horfa á.
Lokahöndin á svona verkefni er að ná flottum myndum sem leyfir rýminu að njóta sín.
Ef að kaupendur af þessum fallegu hönnunar íbúðum vilja fá aðstoð við val á húsgögnum, gólfefnum,ljósum & fl geta viðkomandi sent mér e-mail á arnargauti@sirarnargauti.is & ég klárlega væri til í að koma að fleiri íbúðum í þessu fallega húsi.