E-shop it!
Þegar mig vantar innblástur þá leita ég oft í tvær vefverslanir sem mér finnst súper cool.
Ég komst að því fyrir stuttu að þær voru báðar settar á laggirnar af sama manninum, alveg ótrúleg tillviljun, held að þessi gaur sé snillingur. Maðurinn á bak verslanirnar heitir Bradford Shellhammer. Hann stofnaði fyrst www.fab.com sem er æðisleg vefverslun.
Á fab.com er fullt af flottum hugmyndum, skemmtileg hönnun, fylgihlutir, listmunir, allskonar stuff fyrir heimilið & eru vörurnar oftast á góðu verði.
Bradford hætti að starfa við fab.com í nóvember 2013 & eyddi árinu í að ferðast til að fá innblástur. Hann stofnaði svo vefverslunina www.bezar.com sem er stytting á nöfnunum Bazaar & Bizarre.
Á bezar.com er að finna ótrúlega skemmtilega hönnun sem er vert að skoða ef þú villt kaupa eitthvað öðruvísi fyrir þig & heimilið.
Ég mæli algerlega með að þið tjékkið á þessum síðum.