Ég hef alltaf verið mikill kaffi gaur & byrja yfirleitt daginn minn með góðum kaffibolla með teskeið af raw kókosólíu útí. Marta Rún vinkona mín kynnti mig fyrir Tefélaginu um daginn & ég varð te heillaður.
Tefélagið er alger snilld. Á vefsíðunni þeirra getur þú skráð þig í áskrift hjá þeim & fengið sent heim te mánaðarins. Þetta eru hágæða te & einhver þau bestu sem ég hef kynnst. Ég skráði mig í mánaðaráskrift & einn daginn þegar ég kom heim var pósturinn búinn að setja pakka inn um lúguna hjá mér.
Ég hef alltaf verið ótrúlegur sukker fyrir flottri framsetningu & consepti & varð því alveg heillaður hvernig þau í tefélaginu voru búin að hugsa pakkningarnar alla leið.
Það sem var í pakkanum var kassinn & innan í honum er bréfpoki til að setja teið í ásamt upplýsingum um te mánaðarins. Teið kom svo í litlum plastpoka til að halda ferskleikanum.
Ef þið hafið áhuga á að kynnast flottri te menningu getur þú fundið tefélagið hér.
Hér að neðan eru nokkrar gerðir sem eru í boði.
Ég veit ekkert meira notalegra en að fá mér góðan tebolla klukkutíma áður en ég fer að sofa & byrja þannig slökunina mína fyrir nóttina.