Á dögunum fékk ég það verkefni að breyta svefnherbergi þeirra Jóns Gunnars & Fjólu.
Oftar en ekki eigum við það til að láta svefnherbergið sitja á hakanum þegar við erum að hugsa um breytingar yfir höfuð.
Einnig eigum við það til að hugsa alltof lítið um rúmið okkar. Svefninn skiptir okkur öll miklu máli & rúmið okkar spilar þar stóran þátt. Ég er búinn að eiga mitt alltof lengi af gömlum vana.
Við tókum allt svefnherbergið þeirra í gegn & nú svífa þau á skýjum næturinnar í nýja herberginu.

Ég parketlagði vegginn þeirra
Svefnherbergið þeirra var plain eins & svo mörg önnur & ákváðum við að gera það hlýlegt með smá twisti. Ég byrjaði á að parketleggja vegginn á bakvið rúmið. Ég hef oft gert tilraunir með plastparketi frá Ikea & er það mjög auðvelt í uppsetningu hvort sem það er á gólf, loft eða veggi. Það setur skemmtilegan svip á bakvið rúmið.

Elska þennan grásprengda lit í þessu parketi
Þegar parketið var komið á máluðum við allt herbergið í mjúkum gráum tón, fyrir utan loftið. Þessi litur heitir pigieon-gray frá Slippfélaginu & tókum við hann með 15% gljástigi sem er ótrúlega flott mött áferð.

Langar að stela þessum lyklum JGG bara veit það ekki ennþá
Stærstu breytingarnar, sem voru nú ekki mér að þakka, voru að þau keyptu sér nýtt rúm & lífið breyttist. Eftir dágóða leit keyptu þau sér rúm 180 x 200 í Betra Bak með svartklæddum botni.
Þjónustan í Betra Bak er til fyrimyndar. Þar færðu ráðleggingar um hvað hentar best fyrir þína upplifun í rúmum & svo er rúmið keyrt heim til þín.

Ný svefn upplifun í nýju rúmi
Ég vildi hafa uppröðunina í svefnherberginu aðeins óvenjulega & valdi koll sem náttborð öðrum megin en geggjaðan svartan stiga hægra megin til að geta haft pláss fyrir alla fallegu hlutina sem þau eiga. Ein hillan í stiganum nýtist svo, fyrir bókina eða símann, sem náttborð. Bæði kollurinn & stiginn er frá skandinavíska lífstílsvörumerkinu Broste Copenhagen & er til í Húsgagnahöllinni. Sjá HÉR.

Æðislegir púðar úr Húsgagnahöllinni
Ég skreytti rúmið með flottum hauskúpupúðum sem var nú svoldið gert fyrir JGG þar sem hann elskar hauskúpur. Þeir fást einnig í Höllinni sjá HÉR.
Ljósin fyrir ofan rúmið setja mjög sterkan og jafnframt öðruvísi svip sem náttljós, ég hengdi þau upp á krók & læt þau liggja frjálslega niður en þeim er bara stungið í samband með slökkvara.

Fullkomnar tröppur fyrir allt fallega dótið sem þau hafa safnað
Broste Copenhagen tröppurnar gat svo ég notað til að skreyta með þeim munum sem voru til staðar. Síðan setti ég frauðlista sem voru málaðir í sama lit & veggirnir, á kantana & loftið.

Það var til fullt af fallegum krossum sem við hengdum random á vegginn við hliðina á rúminu

Broste Copenhagen tröppur
Eðlilega prýða upphafsstafir barnanna tröppurnar. María, Óðinn & Jökull Ægir. Stafir úr Húsgagnahöllinni.

Settum flotta hluti í gluggakistuna
Við settum cool hluti í gluggakistuna til að skreyta með. Auðvitað hauskúpa með kubbakerti sem brennur niður kúpuna, glerkassa með kubbakertum í til að ná smá kósý stemningu á dimmum haustkvöldum. Einnig setti ég einn lítinn hvítan fugl í glerbúr með marmaraplötu í botninum, fannst hann svo flottur. Alla smáhluti keyptum við í Húsgagnahöllinni.

Klukka á móti rúminu
Ég veit ekki hvort margir séu að spá í tímann þegar þeir eru í rúminu en mér fannst þessi klukka svo geggjuð að ég setti hana á vegginn til móts við rúmið 😉 hún kemur frá Intersteel úr Höllinni.
Súper sáttur við þetta allt saman þó ég segi sjálfur frá.

By Nord
Þegar það er komið nýtt rúm & nýtt útlit á svefnherbergið er ekki annað hægt en að fara að sofa með brakandi fersk rúmföt & uppáhaldið mitt er By Nord rúmfötin frá Höllinni sjá HÉR.